Borgir Episodes
13
Oct. 22, 2026
13. Napólí - Góð ráð fyrir ferðalanginn
Í þriðja og síðasta þættinum um Napólí er komið að hagnýtu hliðinni. Hvernig er best að komast til borgarinnar, hvar er gott að gista, hvernig ferðast maður um – og er Napólí í raun eins hættuleg og orðsporið gefur stundum til kynna? Við skoðum samgöngur, leigubíla, neðanjarðarlestir og Circumvesuviana-lestina og ræðum hvað ferðamenn þurfa helst að varast. Vespurnar koma þar óhjákvæmilega við sögu. Síðan förum við í gönguferð um hjarta Napólí og heimsækjum meðal annars Spaccanapoli, Santa Chiara, Via dei Tribunali, spænska hverfið, Via Toledo og Piazza del Plebiscito áður en haldið er niður að Napólíflóanum. Einnig er komið við hjá Pulcinella, San Gennaro og auðvitað Maradona. Við skoðum mögulegar dagsferðir til Pompeii, Herculaneum og Caserta og rifjum upp áhrifamikla sögu Napólí á Covid-tímanum, þegar panaro solidale – samstöðukarfan – varð tákn um náungakærleik. Napólí er hávær, óreiðukennd og stundum þreytandi. En hún er líka heillandi, óvænt og ákaflega lifandi – borg sem…
12
Oct. 14, 2026
12. Napólí II - Hjátrúin, tónlistin, fótboltinn og pizza
Í öðrum þætti um Napólí kynnumst við litríkri menningu borgarinnar þar sem trú og hjátrú, tónlist, fótbolti og matur fléttast saman á einstakan hátt. Við kynnumst scaramanzia, napólískri hjátrú, rauða verndargripnum cornicello, Pulcinella og San Gennaro, verndardýrlingi borgarinnar. Við heyrum líka af þeirri óvenjulegu hefð að „ættleiða“ höfuðkúpur látinna og biðja þær um vernd. Síðan tekur tónlistin við. Napólí gaf heiminum meðal annars 'O sole mio og Funiculì, Funiculà, auk stórstjarna á borð við Enrico Caruso. Og auðvitað kemur Diego Maradona við sögu – maðurinn sem varð miklu meira en fótboltahetja í Napólí. Við skoðum sögu napólísku pizzunnar, bragðum á sfogliatella og babà og kynnumst fallegri hefð caffè sospeso – kaffi sem greitt er fyrir ókunnugan gest. Að lokum förum við undir götur borgarinnar, þar sem aldagömul göng urðu að loftvarnabyrgjum í síðari heimsstyrjöldinni, áður en við komum aftur upp í dagsljósið til Vesúvíusar og Campi Flegrei. Napólí er borg þar…
11
Oct. 7, 2026
11. Napólí I – Fleira en bara pizza og Vesúvíus
Napólí er borg sem erfitt er að lýsa í fáum orðum. Hún er hávær, litrík, óreiðukennd, söguleg – og umfram allt full af lífi. Í þessum fyrsta þætti um Napólí förum við í ferðalag um meira en 2.500 ára sögu borgarinnar. Við byrjum hjá Grikkjum og sírenunni Parthenope, kynnumst Rómverjum, Normönnum, Spánverjum og Bourbon-konungum og komum við sögu hjá byltingarmanninum Masaniello og þjóðhetjunni Giuseppe Garibaldi. Við rifjum einnig upp hina dramatísku fjóra daga Napólí í síðari heimsstyrjöldinni, þegar borgarbúar risu upp gegn þýska hernámsliðinu, og lítum á dekkri hliðar borgarinnar, meðal annars Camorra. En saga Napólí segir aðeins hálfa söguna. Til að kynnast borginni þarf líka að kynnast fólkinu. Við skoðum Napólíbúa sem tala með höndunum, kalla á milli svala, ræða af ástríðu og mæta lífinu með sérstökum húmor. Fjölskyldan, gatan, kaffið og samtölin fléttast saman í borg þar sem lífið virðist stöðugt vera í gangi. Er hægt að skilja Napólí? Kannski ekki alveg. En það er e…
8
Aug. 26, 2026
8. Róm III - Skemmtileg torg, götur, söfn og frægir staðir í Róm. Hvernig forðastu langar biðraðir?
Í þessum þriðja og síðasta þætti um Róm, beinum við sjónum að borginni sjálfri – frægustu stöðunum, torgunum, götunum, mörkuðunum og matarmenningunni. Við heimsækjum meðal annars Colosseum, Forum Romanum, Pantheon, Vatíkanið, Péturskirkjuna og Trevi-gosbrunninn og fáum hagnýt ráð um miðakaup, biðraðir og hvernig best er að skipuleggja heimsóknir á vinsælustu staðina. Við röltum líka um falleg torg og götur, skoðum verslunarhverfi og markaði og leitum að stöðum þar sem Rómverjar sjálfir halda sig. Matarmenningin fær sinn sess með góðum ráðum um veitingastaði og gelato og við kynnumst klassískum rómverskum réttum eins og carbonara, cacio e pepe og amatriciana.
7
Aug. 19, 2026
7. Róm II - “Ekkert stress”– samgöngur, hverfi og góð ráð
Í þessum öðrum þætti um Róm förum við yfir hagnýt atriði sem geta gert ferðina einfaldari og ánægjulegri. Fjallað er um hvernig best er að komast frá Fiumicino-flugvelli inn í borgina með Leonardo Express, FL1-lestinni, rútu eða leigubíl og hvaða leið hentar eftir staðsetningu gististaðar. Við skoðum ólík hverfi Rómar, meðal annars Testaccio, Monti, Trastevere og Prati, og bent á mikilvægi þess að velja gistingu með góðu aðgengi að almenningssamgöngum. Við ræðum um vasaþjófa og hvernig verja má verðmæti í mannþröng, neðanjarðarlestum og við vinsæla ferðamannastaði. Farið er yfir Metro, strætisvagna, leigubíla og ferðapassa, auk annarra leiða til að upplifa borgina, svo sem gönguferða, Hop-on Hop-off vagna og golfbílaferða. Að lokum er minnt á þægilega skó, vatnsflösku og hina fjölmörgu nasoni-drykkjarvatnsbrunna Rómar.
5
Aug. 12, 2026
6. Róm I - Marglaga, mótsagnakennd og lifandi borg
Í fyrsta þætti af þremur um Róm förum við í ferðalag um tæplega þrjú þúsund ára sögu borgarinnar, frá Rómúlusi og Remusi og rómverska heimsveldinu til Rómar nútímans. Við skoðum hvernig fornminjar, Vatíkanið og heimsfræg kennileiti blandast iðandi mannlífi, kaffibörum, matarmenningu og rómverskri óreiðu. Um leið veltum við fyrir okkur hvað Rómverjar nútímans eiga enn sameiginlegt með forfeðrum sínum – félagslyndi, ástríðu, sterkar matarhefðir og þá óbilandi trú að lífið eigi helst að fara fram þar sem annað fólk er.