Episodes

13
Oct. 22, 2026

13. Napólí - Góð ráð fyrir ferðalanginn

Í þriðja og síðasta þættinum um Napólí er komið að hagnýtu hliðinni. Hvernig er best að komast til borgarinnar, hvar er gott að gista, hvernig ferðast maður um – og er Napólí í raun eins hættuleg og orðsporið gefur stundum til kynna? Við skoðum samgöngur, leigubíla, neðanjarðarlestir og Circumvesuviana-lestina og ræðum hvað ferðamenn þurfa helst að varast. Vespurnar koma þar óhjákvæmilega við sögu. Síðan förum við í gönguferð um hjarta Napólí og heimsækjum meðal annars Spaccanapoli, Santa Chiara, Via dei Tribunali, spænska hverfið, Via Toledo og Piazza del Plebiscito áður en haldið er niður að Napólíflóanum. Einnig er komið við hjá Pulcinella, San Gennaro og auðvitað Maradona. Við skoðum mögulegar dagsferðir til Pompeii, Herculaneum og Caserta og rifjum upp áhrifamikla sögu Napólí á Covid-tímanum, þegar panaro solidale – samstöðukarfan – varð tákn um náungakærleik. Napólí er hávær, óreiðukennd og stundum þreytandi. En hún er líka heillandi, óvænt og ákaflega lifandi – borg sem…
12
Oct. 14, 2026

12. Napólí II - Hjátrúin, tónlistin, fótboltinn og pizza

Í öðrum þætti um Napólí kynnumst við litríkri menningu borgarinnar þar sem trú og hjátrú, tónlist, fótbolti og matur fléttast saman á einstakan hátt. Við kynnumst scaramanzia, napólískri hjátrú, rauða verndargripnum cornicello, Pulcinella og San Gennaro, verndardýrlingi borgarinnar. Við heyrum líka af þeirri óvenjulegu hefð að „ættleiða“ höfuðkúpur látinna og biðja þær um vernd. Síðan tekur tónlistin við. Napólí gaf heiminum meðal annars 'O sole mio og Funiculì, Funiculà, auk stórstjarna á borð við Enrico Caruso. Og auðvitað kemur Diego Maradona við sögu – maðurinn sem varð miklu meira en fótboltahetja í Napólí. Við skoðum sögu napólísku pizzunnar, bragðum á sfogliatella og babà og kynnumst fallegri hefð caffè sospeso – kaffi sem greitt er fyrir ókunnugan gest. Að lokum förum við undir götur borgarinnar, þar sem aldagömul göng urðu að loftvarnabyrgjum í síðari heimsstyrjöldinni, áður en við komum aftur upp í dagsljósið til Vesúvíusar og Campi Flegrei. Napólí er borg þar…
11
Oct. 7, 2026

11. Napólí I – Fleira en bara pizza og Vesúvíus

Napólí er borg sem erfitt er að lýsa í fáum orðum. Hún er hávær, litrík, óreiðukennd, söguleg – og umfram allt full af lífi. Í þessum fyrsta þætti um Napólí förum við í ferðalag um meira en 2.500 ára sögu borgarinnar. Við byrjum hjá Grikkjum og sírenunni Parthenope, kynnumst Rómverjum, Normönnum, Spánverjum og Bourbon-konungum og komum við sögu hjá byltingarmanninum Masaniello og þjóðhetjunni Giuseppe Garibaldi. Við rifjum einnig upp hina dramatísku fjóra daga Napólí í síðari heimsstyrjöldinni, þegar borgarbúar risu upp gegn þýska hernámsliðinu, og lítum á dekkri hliðar borgarinnar, meðal annars Camorra. En saga Napólí segir aðeins hálfa söguna. Til að kynnast borginni þarf líka að kynnast fólkinu. Við skoðum Napólíbúa sem tala með höndunum, kalla á milli svala, ræða af ástríðu og mæta lífinu með sérstökum húmor. Fjölskyldan, gatan, kaffið og samtölin fléttast saman í borg þar sem lífið virðist stöðugt vera í gangi. Er hægt að skilja Napólí? Kannski ekki alveg. En það er e…
10
Sept. 9, 2026

10. Með lest um Ítalíu – Buon viaggio!

Í þessum þætti af Ítalía heillar er haldið “á teinana” og farið yfir allt það helsta sem gott er að vita um lestarferðir á Ítalíu. Lestir eru frábær leið til að ferðast á milli ítalskra borga – en kerfið getur virst dálítið flókið í fyrstu. Fjallað er um mismunandi tegundir lesta, allt frá glæsilegum Frecciarossa-háhraðalestum til héraðslesta sem fara hægar yfir og stoppa nánast við hvert ólífutré. Skoðað er hvernig og hvar best er að kaupa miða, hvað þarf að hafa í huga við bókun og hvers vegna það getur borgað sig að bóka háhraðalestir með góðum fyrirvara. Einnig er farið yfir ítölsku lestarstöðina: hvernig þú finnur rétta brautarpallinn, vagninn og sætið – og hvers vegna þú ættir að þekkja orð eins og partenze, binario og ritardo. Sérstaklega er fjallað um þá mikilvægu reglu að staðfesta miða í héraðslestir. Farangur, matur, öryggi, tafir og lestarverkföll koma einnig við sögu, auk næturlesta og sögulegra ferðamannalesta. Markmiðið er einfalt: að þú getir stigið um borð í…
9
Sept. 2, 2026

9. Á fjórum hjólum um Ítalíu – allt sem þú þarft að vita um bílaleigu

Að leigja bíl á Ítalíu getur verið bæði spennandi og svolítið stressandi. Í stórborgum eins og Róm, Flórens, Mílanó og Napólí er oft mun skynsamlegra að treysta á lestir og almenningssamgöngur. En þegar ferðinni er heitið út í sveitirnar, til lítilla þorpa, vínekranna í Piemonte, fjallanna, strandbæjanna eða svæða þar sem lestir og rútur eru af skornum skammti, getur bílaleigubíllinn orðið lykillinn að allt annarri Ítalíu. Í þessum þætti af Ítalía heillar förum við yfir það helsta sem gott er...
8
Aug. 26, 2026

8. Róm III - Skemmtileg torg, götur, söfn og frægir staðir í Róm. Hvernig forðastu langar biðraðir?

Í þessum þriðja og síðasta þætti um Róm, beinum við sjónum að borginni sjálfri – frægustu stöðunum, torgunum, götunum, mörkuðunum og matarmenningunni. Við heimsækjum meðal annars Colosseum, Forum Romanum, Pantheon, Vatíkanið, Péturskirkjuna og Trevi-gosbrunninn og fáum hagnýt ráð um miðakaup, biðraðir og hvernig best er að skipuleggja heimsóknir á vinsælustu staðina. Við röltum líka um falleg torg og götur, skoðum verslunarhverfi og markaði og leitum að stöðum þar sem Rómverjar sjálfir halda sig. Matarmenningin fær sinn sess með góðum ráðum um veitingastaði og gelato og við kynnumst klassískum rómverskum réttum eins og carbonara, cacio e pepe og amatriciana.
7
Aug. 19, 2026

7. Róm II - “Ekkert stress”– samgöngur, hverfi og góð ráð

Í þessum öðrum þætti um Róm förum við yfir hagnýt atriði sem geta gert ferðina einfaldari og ánægjulegri. Fjallað er um hvernig best er að komast frá Fiumicino-flugvelli inn í borgina með Leonardo Express, FL1-lestinni, rútu eða leigubíl og hvaða leið hentar eftir staðsetningu gististaðar. Við skoðum ólík hverfi Rómar, meðal annars Testaccio, Monti, Trastevere og Prati, og bent á mikilvægi þess að velja gistingu með góðu aðgengi að almenningssamgöngum. Við ræðum um vasaþjófa og hvernig verja má verðmæti í mannþröng, neðanjarðarlestum og við vinsæla ferðamannastaði. Farið er yfir Metro, strætisvagna, leigubíla og ferðapassa, auk annarra leiða til að upplifa borgina, svo sem gönguferða, Hop-on Hop-off vagna og golfbílaferða. Að lokum er minnt á þægilega skó, vatnsflösku og hina fjölmörgu nasoni-drykkjarvatnsbrunna Rómar.
5
Aug. 12, 2026

6. Róm I - Marglaga, mótsagnakennd og lifandi borg

Í fyrsta þætti af þremur um Róm förum við í ferðalag um tæplega þrjú þúsund ára sögu borgarinnar, frá Rómúlusi og Remusi og rómverska heimsveldinu til Rómar nútímans. Við skoðum hvernig fornminjar, Vatíkanið og heimsfræg kennileiti blandast iðandi mannlífi, kaffibörum, matarmenningu og rómverskri óreiðu. Um leið veltum við fyrir okkur hvað Rómverjar nútímans eiga enn sameiginlegt með forfeðrum sínum – félagslyndi, ástríðu, sterkar matarhefðir og þá óbilandi trú að lífið eigi helst að fara fram þar sem annað fólk er.
5
Aug. 5, 2026

5. Hvað er til ráða ef þú veikist á Ítalíu?

Í þessum þætti er fjallað um hvernig ferðalangar geta fengið heilbrigðisaðstoð á Ítalíu. Fyrir brottför er mikilvægt að sækja um Evrópska sjúkratryggingakortið og kanna ferðatryggingar. Fyrir minni háttar veikindi er apótek oft besti fyrsti viðkomustaðurinn á Ítalíu, enda geta lyfjafræðingar veitt ráðgjöf og vísað áfram til læknis. Við alvarleg veikindi eða slys skal hringja í 112 eða fara á Pronto Soccorso. Fyrir vægari vandamál má leita til Guardia Medica í síma 116117, einkarekinna læknastofa eða fjarheilbrigðisþjónustu. Mikilvægast er að vita hvert á að leita og vera vel undirbúin fyrir ferðina.
4
July 29, 2026

4. Lago di Garda – Gardavatnið og töfrar þess sem heilla ferðalanga

Gardavatn (Lago di Garda), stærsta vatn Ítalíu. Lýst er einstakri fegurð vatnsins, þar sem snævi þaktir Alpatoppar mæta pálmatrjám, ólífutrjálundum og Miðjarðarhafsgróðri og skapa landslag sem á sér engan líka annars staðar í Evrópu. Komið er víða við og m.a. fjallað um bæina Sirmione, Malcesine, Limone sul Garda og Riva del Garda. Gardavatn er miklu meira en fallegur áfangastaður: það er staður þar sem náttúra, saga, menning og daglegt líf renna saman og skapa ógleymanlega upplifun sem fær gesti til að koma aftur og aftur.
3
July 22, 2026

3. Ítalía III – Þekkirðu götubrellur vasaþjófanna?

Klaufamistök og skrýtnar reglur, götubrellur og vasaþjófnaður, flugnabit, þjórfé og margt fleira. **** Questura – lögreglustöð Zanzare – moskítóflugur Eh, pazienza! – Svona er lífið (pazienza = þolinmæði) Coperto / pane e coperto. Þjónusta til borðs / brauð og þjónusta til borðs. Servizio incluso - þjónusta innifalin Bancomat – hraðbanki Tassa di soggiorno – ferðamannaskattur Il conto, per favore – Reikninginn, takk Ferragosto – 15. Ágúst Chiuso per ferie – lokað vegna sumarleyfa ...
2
July 15, 2026

2. Ítalía II - Væntingar og veruleiki. Af hverju heillast ferðalangar af Ítalíu?

Ítalía heillar - hlaðvarp fyrir ferðalanga um Ítalíu Hvað er það sem heillar ferðalanga á Ítalíu? Væntingar og veruleiki. Innherjaráð til að njóta ferðarinnar sem best. Skrýtnu reglurnar og margt fleira. ****** ZTL – Zona a traffico limitato. Afmörkuð svæði í borgum og bæjum þar sem bílar þurfa sérstakt leyfi til að aka. Miðsvæðis. Sciopero – scioperi: Verkfall – verkföll. scioperi.mit.gov.it – Upplýsingasíða hins opinbera á Ítalíu varðandi verkföll Dialetto – mállýska Buongiorno – Gó...
July 15, 2026

TRAILER - Ítalía heillar

Kynning á hlaðvarpinu Ítalía heillar. Umsjón: Margrét Gunnarsdóttir upplýsingafræðingur.
1
July 14, 2026

1. Ítalía I - Ertu að skipuleggja ferð til Ítalíu?

Ítalía heillar – hlaðvarp fyrir ferðalanga um Ítalíu. Í þessum fyrsta þætti Ítalía heillar segir Magga frá því hvernig áhugi hennar á Ítalíu kviknaði þegar hún fór sautján ára gömul sem skiptinemi til landsins. Hún deilir eigin reynslu með þér og gefur hagnýt ráð fyrir þig sem ert mögulega að skipuleggja Ítalíuferð. Fjallað er um hvernig velja megi áfangastaði, kosti þess að ferðast utan mesta sumarhitans og hvers vegna „slow travel“ getur veitt þér meiri upplifun. Einnig er þér bent á að for...